Efnafíkn... er það til? Ekki fíkniefna samt, bara fataefna.
Allavegana ef svo er þá: ,,Hæ, ég heiti Auður og ég er fataefnafíkill´´. (,,Hæ Auður´´) :)
Vá ég bara fæ ekki nóg af því að kaupa ný efni og sauma. Svo ef ég er ekki að því þá er ég á netinu að fá hugmyndir að einhverju sem ég gæti saumað.. Þetta er líka svo ódýrt! ég er alltaf að græða! (haha við Stína viljum trúa því að þegar eitthvað er á afslætti eða ódýrt þá erum við að græða ;) miklu skemmtilegra en hitt!)
En nú er ég búin að sauma utan um gömlu fjölskylduvögguna fyrir Önnu vinkonu sem ætlar að fá hana lánaða og er að græja blússur fyrir skvísurnar tvær á Dalvík en ég er svo stútfull af hugmyndum (og ýmislegt sem mig vantar - já VANTAR höhumm ;) ) þannig að ég dreif mig enn og aftur í Twill í dag og keypti smá í pils, buxur og fl. Langar aftur á morgun.
Er þetta eðlilegt?
kv. Auður fabriholic
p.s. var að kíkja í pokann til að byrja á buxunum og allt efni hefur GLEYMST í búðinni nema eitt! haha er þetta hægt?
 |
| Efnið sem komst heim mun ég nýta í trefil/klút :) |