Hef verið að prufureyna nýja símann minn og myndavélin er ótrúleg vægast sagt! Nú viðurkenni ég alveg að ég er enginn myndavélasérfræðingur og kann rétt svo að taka myndir með því að miða og smella - reyndar með hjálp allra þessa ''appa'' er hægt að láta myndir líta út eins og listaverk - en allavegana, mikið kom hann mér skemmtilega á óvart þegar ég var að prófa nærmyndina!
Þetta kalla ég góð gæði!
Og ég lofa að ég hef ekkert átt við myndina, hún er nákvæmlega eins og þegar ég tók hana.
Mæli með nýja samsung!
kv. Auður

Geðveikt flott, og þú þorin að fara svona nálægt geitungnum! :P haha
ReplyDeletekv, Klara.