Við Stína fengum svo góða hugmynd mjög skyndilega á föstudegi. Við drifum okkur í Góða Hirðinn í leit að kandídat stólum til að fegra. Okkur var greinilega ætlað þetta helgarverkefni því okkar biðu akkúrat tveir alveg eins stólar sem kölluðu á endurlífgun. Ekki skemmdi fyrir að við fengum þá á þúsund krónur stykkið! ;)
Ég var búin að finna efnið sem mig langaði að nota svo við fórum og keyptum hvítan háglans lakkbrúsa og fínan sandpappír. Bjössi bróðir pabba reddaði okkur heftibyssunni, sem er ómissanleg í svona aðgerðum! (ein með reynslu) Þá var ferðinni heitið heim og allt tekið í sundur, pússað, lakkað og bólstrað.
Við erum hæstánægðar með útkomuna :)

Fallegur er hann
Nú eigum við Stína tvíburastóla á besta stað í svefnherbergjunum okkar.
kv. Auður

No comments:
Post a Comment