Wednesday, February 22, 2012

Ein ég sit og teikna



Stundum gefst mér smá tími til að gera ekki neitt.  Nú er DD enn lasinn heima en hann er að taka sér smá blund, það er of stuttur tími til að sökkva sér í nýtt fag, en ég er búin með fjármálastjórnun og er að byrja í rekstrarstjórnun.  Í staðinn fyrir að hanga, sem ég er mjög fær í, þá dreg ég fram litamöppuna mína og set hugmyndir niður á blað :)  Einn góðan veðurdag mun vonandi eitthvað af öllu því sem ég hef gert fara í framleiðslu, þó þetta er aðallega bara mér til gamans.

Yfirleitt veit ég nákvæmlega hvað ég er að fara að teikna, þá er það hugmynd sem er búin að malla í huganum.  En stundum byrja ég bara að gera eitthvað. Stundum er það ljótt. Stundum fínt.  Ég fékk hugmynd af sumarkjólum eitt kvöldið í vikunni og mig langar mikið að sauma kjól nr. 1.  En sleppa öllum ermum, þær eru of mikið dúllerí fyrir mig.

sumar 2012?

Já, þangað til næst!

Brjáluð vika liðin- ný tekur við :)

Ég stóð mig aldeilis ekki neitt í blogginu í síðastliðinni viku en bæti það upp með smá bloggspammi í dag!  Ég var nefnilega svo sniðug að grípa á mynd það sem mér fannst geta farið á netið og geymdi í tölvunni góðu þar til ég fengi tíma til að setjast niður :)
Ástæður fyrir bloggleysinu voru verkefnaskil, 2 ára afmæli og próf! Já, það er sko meira en að segja það!

En hann Daníel Darri varð 2 ára 20. febrúar sl. og í tilefni af því héldum við afmælisveislu á laugardaginn 18.
Það var Toy story þema og svo ein Dodda kaka, en þetta tvennt er UPPÁHALDS um þessar mundir.




Toy story geimverurnar urðu að ljúffengum mini-bollakökum.




Viddi, Rex og Bósi stóðu fyrir sínu. Uppskriftina af kökunni bjó ég nú bara til sjálf en í grófum dráttum: Svampbotnar, heimagerður hindberjafrómas og vanillukrem. DELICIOUS!


Pakkar pakkar

Stóri strákurinn minn :*


Afmæliskoss á afmælisdaginn - náttfatadagur því DD var lasinn :)


Þar til næst!


Tuesday, February 14, 2012

Andlitsvatn

Ég er algjört tilraunadýr!  Mér finnst æðislegt að malla og mauka eitthvað heima sem er gott í hárið, húðina,  tennur eða varir :) Jafnvel sem styrkir neglur! (á örugglega eftir að koma með húsráð fyrir þetta allt saman með tímanum)

Hér er eitt húsráðið til að gefa endurheimta heilbrigði og útgeislun húðarinnar :)

Þetta hef ég gert nokkrum sinnum (og á eftir að gera oft oft oft).  Það koma tímabil hjá flestum þar sem húðin er svo LEIÐILEG.  Hrjúf eða ójöfn? Bólur, fita? Þurrkur eða bara bleh? Prófaðu þessa aðferð nokkrum sinnum, þú finnur og sérð árangur eftir fyrsta skiptið (vonandi, það gerði ég allavegana).

Það sem þú þarft:

Þessi camillu, fennel og fl. blanda róar húðina finnst mér.

Sweet chili teið - finn hitastinginn örva húðina.


Svo síðast en ekki alls ekki síst! Engiferrótin færir húðinni endalausa nýja orku og ferskleika!

 svo VATNIÐ góða 


Taktu fram lítinn pott og settu 1-2 bolla af vatni í hann (hvað viltu eiga mikið afgangs?).  Skelltu sitthvorum tepokanum í og sneiddu engifer eftir smekk, ég set slatta.  Leyfðu þessu að sjóða vel til að hafa vatnið vel sterkt.  Einfalt!



Getur ekki verið óhollt fyrir húðina. - Eintóm orka og endurnæring!
Leyfðu svo vatninu aðeins að kólna, en ekkert endilega hafa það kalt - oft gott að hafa þetta örlítið heitt til að opna húðina.
Næst skaltu taka þvottastykki sem þú tímir að klippa (langeinfaldast, mátt auðvitað nota þínar aðferðir).  Klipptu gat fyrir augu, nef og munn.  Fínasta gríma!
Bleyttu nýju grímuna þína upp úr andlitsvatninu, þerraðu örlítið svo ekki dropi um allt.  Leggstu/sestu nú niður og lestu bók eða horfðu á sjónvarp meðan töfrarnir vinna, því lengur því betra en ég geri þetta ca. 15-20 mín.
Þarft ekki endilega að þvo þér í framan eftir á, ég geri það ekki.
Þú munt finna, jafnvel sjá mun daginn eftir!

Svo hef ég geymt afganginn í ísskáp og mér finnst æðislegt að taka bómul næsta morgun, eftir að hafa þvegið mér í framan með heitum þvottapoka, bleyta bómulinn upp úr ísköldu andlitsvatninu og strjúka yfir andlitið.  Þetta er fljótt að þorna :)

Endilega látið mig vita hvernig þetta virkar á ykkur!

Þar til næst :)

p.s. Þetta andlitsvatn má drekka auðvitað og er kvefbani!

Thursday, February 9, 2012

Löng saga stutt.



Ég heiti Auður.
Ég er 23 ára.
Ég á kærasta - Andri.
Ég er mamma - Daníel Darri 2 ára.
Ég er nemi - flugrekstrarfræði.
Ég á frábæra fjölskyldu og við erum öll mjög náin.
Ég á frábærar vinkonur og frænkur sem ég tel vera mínar vinkonur.
Ég er mikill dýravinur - samt langar mig í pels.
Ég á mörg áhugamál - þið komist að því.

Hér á þessari síðu minni ætla ég að leyfa hugmyndafluginu að njóta sín.  Ég mun setja inn vangaveltur, afrek dagsins, hugmyndir sem tengjast tísku, heilsu, útliti, heimili, húsráð, jafnvel henda inn myndum af skemmtilegum uppákomum og svo bara allt sem mér dettur í hug.
Ástæðan fyrir þessari síðu er að mér finnst svo skemmtilegt að vafra á netinu og lesa hitt og þetta, ég heimsæki reglulega ákveðnar síður sem meðal annars veita mér oft innblástur og hvatningu!  Mig langar bara að gera það sama og vona að hér muni eitthvað sniðugt koma annað slagið sem veitir öðrum innblástur og hvatningu!
Nú og svo fyrir þá sem eru búnir með nethringinn sinn tvisvar sinnum og búnir að skoða allt, en ennþá 40 mín eftir af drepleiðilegum tíma þá bætist hér ein síða við :)
Ég ætla ekki að lofa neinum x mörgum fræslum daglega eða vikulega. Ég veit ekki hversu virk ég verð. Mig langar bara að prófa.

Þar til næst!
Auður