Stundum gefst mér smá tími til að gera ekki neitt. Nú er DD enn lasinn heima en hann er að taka sér smá blund, það er of stuttur tími til að sökkva sér í nýtt fag, en ég er búin með fjármálastjórnun og er að byrja í rekstrarstjórnun. Í staðinn fyrir að hanga, sem ég er mjög fær í, þá dreg ég fram litamöppuna mína og set hugmyndir niður á blað :) Einn góðan veðurdag mun vonandi eitthvað af öllu því sem ég hef gert fara í framleiðslu, þó þetta er aðallega bara mér til gamans.
Yfirleitt veit ég nákvæmlega hvað ég er að fara að teikna, þá er það hugmynd sem er búin að malla í huganum. En stundum byrja ég bara að gera eitthvað. Stundum er það ljótt. Stundum fínt. Ég fékk hugmynd af sumarkjólum eitt kvöldið í vikunni og mig langar mikið að sauma kjól nr. 1. En sleppa öllum ermum, þær eru of mikið dúllerí fyrir mig.
| sumar 2012? |
Já, þangað til næst!
OMG þú gerir svoooo flottar tískuteikningar Auður!!:D love it ;) ---Hafrún ;*
ReplyDeleteBæði teikningarnar og kjólarnir finnst mér ÆÐI!! Held að þú getir vel sett þetta í framleiðslu! :)
ReplyDelete