Ég heiti Auður.
Ég er 23 ára.
Ég á kærasta - Andri.
Ég er mamma - Daníel Darri 2 ára.
Ég er mamma - Daníel Darri 2 ára.
Ég er nemi - flugrekstrarfræði.
Ég á frábæra fjölskyldu og við erum öll mjög náin.

Ég á frábærar vinkonur og frænkur sem ég tel vera mínar vinkonur.
Ég er mikill dýravinur - samt langar mig í pels.
Ég á mörg áhugamál - þið komist að því.
Hér á þessari síðu minni ætla ég að leyfa hugmyndafluginu að njóta sín. Ég mun setja inn vangaveltur, afrek dagsins, hugmyndir sem tengjast tísku, heilsu, útliti, heimili, húsráð, jafnvel henda inn myndum af skemmtilegum uppákomum og svo bara allt sem mér dettur í hug.
Ástæðan fyrir þessari síðu er að mér finnst svo skemmtilegt að vafra á netinu og lesa hitt og þetta, ég heimsæki reglulega ákveðnar síður sem meðal annars veita mér oft innblástur og hvatningu! Mig langar bara að gera það sama og vona að hér muni eitthvað sniðugt koma annað slagið sem veitir öðrum innblástur og hvatningu!
Nú og svo fyrir þá sem eru búnir með nethringinn sinn tvisvar sinnum og búnir að skoða allt, en ennþá 40 mín eftir af drepleiðilegum tíma þá bætist hér ein síða við :)
Ég ætla ekki að lofa neinum x mörgum fræslum daglega eða vikulega. Ég veit ekki hversu virk ég verð. Mig langar bara að prófa.

Þar til næst!
Auður
Auður
Frábært!! Hlakka yil að fylgjast með þessu :)
ReplyDeleteKv. Alla