| Sweet chili teið - finn hitastinginn örva húðina. |
| Svo síðast en ekki alls ekki síst! Engiferrótin færir húðinni endalausa nýja orku og ferskleika! |
| svo VATNIÐ góða |
Taktu fram lítinn pott og settu 1-2 bolla af vatni í hann (hvað viltu eiga mikið afgangs?). Skelltu sitthvorum tepokanum í og sneiddu engifer eftir smekk, ég set slatta. Leyfðu þessu að sjóða vel til að hafa vatnið vel sterkt. Einfalt!
![]() |
| Getur ekki verið óhollt fyrir húðina. - Eintóm orka og endurnæring! |
Leyfðu svo vatninu aðeins að kólna, en ekkert endilega hafa það kalt - oft gott að hafa þetta örlítið heitt til að opna húðina.
Næst skaltu taka þvottastykki sem þú tímir að klippa (langeinfaldast, mátt auðvitað nota þínar aðferðir). Klipptu gat fyrir augu, nef og munn. Fínasta gríma!
Bleyttu nýju grímuna þína upp úr andlitsvatninu, þerraðu örlítið svo ekki dropi um allt. Leggstu/sestu nú niður og lestu bók eða horfðu á sjónvarp meðan töfrarnir vinna, því lengur því betra en ég geri þetta ca. 15-20 mín.
Þarft ekki endilega að þvo þér í framan eftir á, ég geri það ekki.
Þú munt finna, jafnvel sjá mun daginn eftir!
Svo hef ég geymt afganginn í ísskáp og mér finnst æðislegt að taka bómul næsta morgun, eftir að hafa þvegið mér í framan með heitum þvottapoka, bleyta bómulinn upp úr ísköldu andlitsvatninu og strjúka yfir andlitið. Þetta er fljótt að þorna :)

Endilega látið mig vita hvernig þetta virkar á ykkur!
Þar til næst :)
p.s. Þetta andlitsvatn má drekka auðvitað og er kvefbani!

Mikið er þetta sniðugt! Ætla pottþétt að prófa og láta vita ;)
ReplyDeleteKveðja!
Thanks and that i have a neat supply: Where Do You Get The Money To Renovate A House whole home remodel cost
ReplyDelete