Wednesday, August 1, 2012

Bara karlmenn


Við Andri erum að laga til og þetta blasir við þegar ég kem inn í stofu! Náttúrulega tilvalin staðsetning fyrir heyrnatólin hans Andra!  S.s. handfangið fyrir lokið yfir arninum - af því að þetta er nú á veggnum og þá liggja heyrnatólin ekki í kös :)

KARLMENN 


Monday, July 30, 2012

Eins og barn í sælgætisbúð!

Efnafíkn...  er það til?  Ekki fíkniefna samt, bara fataefna.

Allavegana ef svo er þá: ,,Hæ, ég heiti Auður og ég er fataefnafíkill´´.  (,,Hæ Auður´´)  :)


Vá ég bara fæ ekki nóg af því að kaupa ný efni og sauma.  Svo ef ég er ekki að því þá er ég á netinu að fá hugmyndir að einhverju sem ég gæti saumað..  Þetta er líka svo ódýrt! ég er alltaf að græða! (haha við Stína viljum trúa því að þegar eitthvað er á afslætti eða ódýrt þá erum við að græða ;) miklu skemmtilegra en hitt!)

En nú er ég búin að sauma utan um gömlu fjölskylduvögguna fyrir Önnu vinkonu sem ætlar að fá hana lánaða og er að græja blússur fyrir skvísurnar tvær á Dalvík en ég er svo stútfull af hugmyndum (og ýmislegt sem mig vantar - já VANTAR höhumm ;) ) þannig að ég dreif mig enn og aftur í Twill í dag og keypti smá í pils, buxur og fl.  Langar aftur á morgun.

Er þetta eðlilegt?

kv. Auður fabriholic

p.s. var að kíkja í pokann til að byrja á buxunum og allt efni hefur GLEYMST í búðinni nema eitt! haha er þetta hægt?


Efnið sem komst heim mun ég nýta í trefil/klút :)


Sunday, July 29, 2012

Nelly

Meðan ég man...

Mig langar í...


Þessa hér...
SIENNA
JADE

KIM

Og marga marga marga í viðbót!

En ég er svo raunsæ að ég læt mig ekki dreyma um fleiri en 3 pör í einu hoho! ;)

Þessa finnið þið alla á nelly.com

kv. Auður





Wednesday, July 18, 2012

Andagift hönnunar

Hönnun fer hring eftir hring alveg eins og tískan.  Ég held mikið upp á gler og plexi eins og margir aðrir í dag. Mér finnst húsgögn úr slíku efni mjög falleg og alls ekki kuldaleg því það er hægt að leika sér svo mikið með þetta. 


Það eru ekki allir sem vita að trendsetterinn Helena Rubenstein byrjaði með slíka línu fyrir seinni heimstyrjöld.



Hér situr hún í rúminu sínu á 4. áratugnum með fulla athygli gesta sinna, sem einnig sitja öll í sömu hönnunarlínu.


Á myndinni hér fyrir neðan er Katie H. í upprunalegum Helenu Rubenstein stól síðan um 1935.







Eins og sjá má á þessari mynd (nr.2) fyrir ofan fást eftirlíkingar af fræga H.R. stólnum. 


Rakst svo á þetta fallega pósthólf!  MIKIL ósköp hvað mig langar í svona!!! :)

Kv. Auður



Tuesday, July 17, 2012

Í nærmynd


Hef verið að prufureyna nýja símann minn og myndavélin er ótrúleg vægast sagt!  Nú viðurkenni ég alveg að ég er enginn myndavélasérfræðingur og kann rétt svo að taka myndir með því að miða og smella - reyndar með hjálp allra þessa ''appa'' er hægt að láta myndir líta út eins og listaverk - en allavegana, mikið kom hann mér skemmtilega á óvart þegar ég var að prófa nærmyndina!


Þetta kalla ég góð gæði!

Og ég lofa að ég hef ekkert átt við myndina, hún er nákvæmlega eins og þegar ég tók hana.

Mæli með nýja samsung!

kv. Auður 


Friday, July 13, 2012

Kósýkvöld

Liggjum yfir þrusuræmum í kvöld!




Vorum að klára This means war með Reese Witherspoon, Chris Pine og Tom Hardy - Þið VERÐIÐ að sjá hana! Virkilega skemmtileg - og fjallmyndarlegir menn ;)




Nú erum við að byrja á Unthinkable með Samuel L. Jackson



Byrjar allavegana vel! :)


kv. Auður 


Gamalt/Nýtt

Við Stína fengum svo góða hugmynd mjög skyndilega á föstudegi.  Við drifum okkur í Góða Hirðinn í leit að kandídat stólum til að fegra.  Okkur var greinilega ætlað þetta helgarverkefni því okkar biðu akkúrat tveir alveg eins stólar sem kölluðu á endurlífgun.  Ekki skemmdi fyrir að við fengum þá á þúsund krónur stykkið! ;)
Ég var búin að finna efnið sem mig langaði að nota svo við fórum og keyptum hvítan háglans lakkbrúsa og fínan sandpappír.   Bjössi bróðir pabba reddaði okkur heftibyssunni, sem er ómissanleg í svona aðgerðum! (ein með reynslu) Þá var ferðinni heitið heim og allt tekið í sundur, pússað, lakkað og bólstrað.

Við erum hæstánægðar með útkomuna :)


Fallegur er hann

Nú eigum við Stína tvíburastóla á besta stað í svefnherbergjunum okkar.

kv. Auður

Sumarlegt


Mér fannst svo einmannalegt að horfa á tóman vasann á borðstofuborðinu svo ég dreif mig út og náði mér í bleikar fallegar rósir úr rósarunnunum.  Hvítu rósirnar tíndi ég þó í IKEA.



Sumarlegt :)

Wednesday, July 4, 2012

Aldrei án...

Það er sumt sem ekki er hægt að vera án...
Ég fer ekki út úr húsi án úrsins mín og uppáhalds hringanna minna.


Add caption
Andri gaf mér báða gullhringana á baugfingri (nei ekki trúlofunarhringar :)!)  Og hringurinn á löngutöng fékk ég frá ömmu Doddu heitinni :).  Reyndar fékk mamma hann í fermingagjöf en einhvernveginn var amma bara alltaf með hann seinna meir.  Úrið fékk ég í afmælisgjöf 2010 og hef ekki verið án þess síðan!
Það passar nánast alltaf við öll tilefni og svo skreytir maður með aukahlutum eins og þessum fíííínu fínu armböndum sem Klara og Guðrún gáfu mér í afmælisgjöf um daginn.

Tuesday, July 3, 2012

Önnur tilraun

Ok ok ok....

Þetta gekk ekkert eins og smurt síðast...   eeen! þegar mér dettur eitthvað skemmtilegt í hug þá mun ég setja það hingað inn ;)

Það var bara svo mikið ves að setja inn myndir og e-ð, græja cameru (oh batteríslaus - eða full af myndum), setja í tölvuna, hlaða inn og volia! Fór aðeins 1 1/2 tími í þetta.  En nú hinsvegar, þegar maður er kominn með fyrsta flokks snjallsíma, þá er annað hljóð í minni.  Enga stund að grípa andartakið og skella inn ;)

En mikið ótrúlega er þetta skemmtilegt og sniðugt tæki! Ég hélt ég gæti aldrei verið jafn háð tæki (nema þegar bróðir minn fékk playstation þegar við vorum lítil og þá varð ég húkt á Rayman - væri reyndar til í hann núna asap)
Mjög skemmtilegur ævintýraleikur!

Er einhver sammála?  LAN heima hjá mér um helgina! Fæ domino´s til að styrkja okkur! HAHA

Wednesday, February 22, 2012

Ein ég sit og teikna



Stundum gefst mér smá tími til að gera ekki neitt.  Nú er DD enn lasinn heima en hann er að taka sér smá blund, það er of stuttur tími til að sökkva sér í nýtt fag, en ég er búin með fjármálastjórnun og er að byrja í rekstrarstjórnun.  Í staðinn fyrir að hanga, sem ég er mjög fær í, þá dreg ég fram litamöppuna mína og set hugmyndir niður á blað :)  Einn góðan veðurdag mun vonandi eitthvað af öllu því sem ég hef gert fara í framleiðslu, þó þetta er aðallega bara mér til gamans.

Yfirleitt veit ég nákvæmlega hvað ég er að fara að teikna, þá er það hugmynd sem er búin að malla í huganum.  En stundum byrja ég bara að gera eitthvað. Stundum er það ljótt. Stundum fínt.  Ég fékk hugmynd af sumarkjólum eitt kvöldið í vikunni og mig langar mikið að sauma kjól nr. 1.  En sleppa öllum ermum, þær eru of mikið dúllerí fyrir mig.

sumar 2012?

Já, þangað til næst!

Brjáluð vika liðin- ný tekur við :)

Ég stóð mig aldeilis ekki neitt í blogginu í síðastliðinni viku en bæti það upp með smá bloggspammi í dag!  Ég var nefnilega svo sniðug að grípa á mynd það sem mér fannst geta farið á netið og geymdi í tölvunni góðu þar til ég fengi tíma til að setjast niður :)
Ástæður fyrir bloggleysinu voru verkefnaskil, 2 ára afmæli og próf! Já, það er sko meira en að segja það!

En hann Daníel Darri varð 2 ára 20. febrúar sl. og í tilefni af því héldum við afmælisveislu á laugardaginn 18.
Það var Toy story þema og svo ein Dodda kaka, en þetta tvennt er UPPÁHALDS um þessar mundir.




Toy story geimverurnar urðu að ljúffengum mini-bollakökum.




Viddi, Rex og Bósi stóðu fyrir sínu. Uppskriftina af kökunni bjó ég nú bara til sjálf en í grófum dráttum: Svampbotnar, heimagerður hindberjafrómas og vanillukrem. DELICIOUS!


Pakkar pakkar

Stóri strákurinn minn :*


Afmæliskoss á afmælisdaginn - náttfatadagur því DD var lasinn :)


Þar til næst!


Tuesday, February 14, 2012

Andlitsvatn

Ég er algjört tilraunadýr!  Mér finnst æðislegt að malla og mauka eitthvað heima sem er gott í hárið, húðina,  tennur eða varir :) Jafnvel sem styrkir neglur! (á örugglega eftir að koma með húsráð fyrir þetta allt saman með tímanum)

Hér er eitt húsráðið til að gefa endurheimta heilbrigði og útgeislun húðarinnar :)

Þetta hef ég gert nokkrum sinnum (og á eftir að gera oft oft oft).  Það koma tímabil hjá flestum þar sem húðin er svo LEIÐILEG.  Hrjúf eða ójöfn? Bólur, fita? Þurrkur eða bara bleh? Prófaðu þessa aðferð nokkrum sinnum, þú finnur og sérð árangur eftir fyrsta skiptið (vonandi, það gerði ég allavegana).

Það sem þú þarft:

Þessi camillu, fennel og fl. blanda róar húðina finnst mér.

Sweet chili teið - finn hitastinginn örva húðina.


Svo síðast en ekki alls ekki síst! Engiferrótin færir húðinni endalausa nýja orku og ferskleika!

 svo VATNIÐ góða 


Taktu fram lítinn pott og settu 1-2 bolla af vatni í hann (hvað viltu eiga mikið afgangs?).  Skelltu sitthvorum tepokanum í og sneiddu engifer eftir smekk, ég set slatta.  Leyfðu þessu að sjóða vel til að hafa vatnið vel sterkt.  Einfalt!



Getur ekki verið óhollt fyrir húðina. - Eintóm orka og endurnæring!
Leyfðu svo vatninu aðeins að kólna, en ekkert endilega hafa það kalt - oft gott að hafa þetta örlítið heitt til að opna húðina.
Næst skaltu taka þvottastykki sem þú tímir að klippa (langeinfaldast, mátt auðvitað nota þínar aðferðir).  Klipptu gat fyrir augu, nef og munn.  Fínasta gríma!
Bleyttu nýju grímuna þína upp úr andlitsvatninu, þerraðu örlítið svo ekki dropi um allt.  Leggstu/sestu nú niður og lestu bók eða horfðu á sjónvarp meðan töfrarnir vinna, því lengur því betra en ég geri þetta ca. 15-20 mín.
Þarft ekki endilega að þvo þér í framan eftir á, ég geri það ekki.
Þú munt finna, jafnvel sjá mun daginn eftir!

Svo hef ég geymt afganginn í ísskáp og mér finnst æðislegt að taka bómul næsta morgun, eftir að hafa þvegið mér í framan með heitum þvottapoka, bleyta bómulinn upp úr ísköldu andlitsvatninu og strjúka yfir andlitið.  Þetta er fljótt að þorna :)

Endilega látið mig vita hvernig þetta virkar á ykkur!

Þar til næst :)

p.s. Þetta andlitsvatn má drekka auðvitað og er kvefbani!

Thursday, February 9, 2012

Löng saga stutt.



Ég heiti Auður.
Ég er 23 ára.
Ég á kærasta - Andri.
Ég er mamma - Daníel Darri 2 ára.
Ég er nemi - flugrekstrarfræði.
Ég á frábæra fjölskyldu og við erum öll mjög náin.
Ég á frábærar vinkonur og frænkur sem ég tel vera mínar vinkonur.
Ég er mikill dýravinur - samt langar mig í pels.
Ég á mörg áhugamál - þið komist að því.

Hér á þessari síðu minni ætla ég að leyfa hugmyndafluginu að njóta sín.  Ég mun setja inn vangaveltur, afrek dagsins, hugmyndir sem tengjast tísku, heilsu, útliti, heimili, húsráð, jafnvel henda inn myndum af skemmtilegum uppákomum og svo bara allt sem mér dettur í hug.
Ástæðan fyrir þessari síðu er að mér finnst svo skemmtilegt að vafra á netinu og lesa hitt og þetta, ég heimsæki reglulega ákveðnar síður sem meðal annars veita mér oft innblástur og hvatningu!  Mig langar bara að gera það sama og vona að hér muni eitthvað sniðugt koma annað slagið sem veitir öðrum innblástur og hvatningu!
Nú og svo fyrir þá sem eru búnir með nethringinn sinn tvisvar sinnum og búnir að skoða allt, en ennþá 40 mín eftir af drepleiðilegum tíma þá bætist hér ein síða við :)
Ég ætla ekki að lofa neinum x mörgum fræslum daglega eða vikulega. Ég veit ekki hversu virk ég verð. Mig langar bara að prófa.

Þar til næst!
Auður